Náms- og starfsráðgjöf
Starfsfólki í iðn- og verkgreinum býðst náms- og starfsráðgjöf hjá IÐUNNI til að skoða möguleika sína í námi og starfsþróun. Markmið ráðgjafarinnar er að stuðla að auknum árangri í námi og starfi og er ráðgjöfin gjaldfrjáls.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gerir samning við IÐUNA ár hvert en í honum felst að bjóða fólki á vinnumarkaði með litla grunnmenntun, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat.
Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR eru fjórir og hafa þeir sinnt raunfærnimati og náms- og starfsráðgjöf en að auki tekið þátt í verkefninu Fræðslustjóri að láni og farið í fyrirtækjaheimsóknir. Jafnframt er náms- og starfsráðgjöfin þátttakandi í verkefninu VISKA sem er Erasmus KA3 stefnumótunarverkefni, ásamt Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA). IÐAN og FA stýra verkefninu hérlendis fyrir hönd Mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Samstarfslönd í VISKA verkefninu eru Noregur (norska menntamálaráðuneytið), Belgía (flæmska menntamálaráðuneytið), og Írland (Quality and Qualifications Ireland-QQI og Cork Institution of Technology-CIT). Verkefnið er til 3ja ára, hófst í febrúar 2017 og lýkur 2020. Í VISKA verkefninu er áhersla lögð á að þróa viðmið og aðferðir til að draga fram og meta þekkingu og færni fullorðinna, sérstaklega með innflytjendur í huga. Ákveðið var að vinna með pólskum innflytjendum í verkefninu á Íslandi, þar sem þeir eru langfjölmennasti hópur innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði. Öll gögn voru þýdd yfir á pólsku og túlkar í viðtölunum.
Búið er að raunfærnimeta 51 einstakling í gegnum VISKA verkefnið og fékkst af því heilmikill lærdómur. Innanlandsráðstefna um verkefnið verður haldin þann 27. janúar 2020 og þar verða helstu niðurstöður verkefnisins kynntar. Lokaráðstefna verður svo í Brussel 12.febrúar 2020.
Árangur í starfi
Á starfsárinu (júlí 2018 - júní 2019) var unnið raunfærnimat í 22 greinum á móti námskrá og í einni starfsgrein á móti hæfnikröfum starfa og er það í fyrsta skipti sem IÐAN fræðslusetur vinnur raunfærnimat á móti hæfniskröfum starfs. Var um þróunarverkefni að ræða og var starf þerna raunfærnimetið. Raunfærnimatið var þróað eftir hæfnigreiningu á starfinu sem unnin var í samstarfi við FA og sérfræðinga úr atvinnulífinu. Inntökuskilyrði voru þau sömu og eru í raunfærnimati á móti námskrá. Mjög lærdómsríkt var að taka þátt í raunfærnimati á móti hæfnikröfum starfa og mikil vinna fór í undirbúningsferlið.
Alls fóru 204 einstaklingar í raunfærnimat og fjöldi staðinna eininga á árinu var 10.290. Ánægjulegt er að segja frá því að metnar hafa verið um 105.000 einingar hjá IÐUNNI síðan árið 2007.
Heildarfjöldi viðtala á starfsárinu var 2.153 fyrir utan viðtöl í VISKA verkefninu og þróunarverkefninu fyrir þernur.
Gott samstarf er við símenntunarmiðstöðvar landsins og er reynt að bjóða raunfærnimat víðsvegar um landið eftir því sem kostur er. Að þessu sinni voru unnin raunfærnimatsverkefni í samvinnu við flestar símenntunarmiðstöðvar á landinu.
Samstarf við Vinnumálastofnun
Samstarf við Vinnumálastofnun hélt áfram á starfsárinu og haldnar voru þrjár suðusmiðjur fyrir atvinnuleitendur, ein MIG/MAG smiðja og tvær TIG smiðjur.