image description

IÐAN fræðslusetur

IÐAN sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum og matvæla- og veitingagreinum. Hlutverk IÐUNNAR er að sjá fyrirtækjum og einstaklingum fyrir nýrri þekkingu og færni eftir því sem þörf krefur. 

Áhersla er lögð á að bregðast skjótt við þörfum iðnaðarins fyrir nýja þekkingu. Með öflugri símenntun móta einstaklingar starfsþróun sína eftir kröfum atvinnulífsins og með þeim hætti verður þekking þeirra verðmætari bæði fyrir þá sjálfa og samfélagið í heild. IÐAN býður fyrirtækjum og einstaklingum markviss tækifæri og lausnir í símenntun. 

Á vegum IÐUNNAR fer fram greining á þörfum fyrirtækja fyrir þekkingu. Þjálfun og þekkingu er miðlað með hliðsjón af því sem hentar aðstæðum og þörfum hvers og eins, hvort sem um er að ræða kennslu í skólastofu, þjálfun á vinnustað eða einstaklingsbundna leiðsögn.

Stjórn IÐUNNAR

Stjórn IÐUNNAR fundaði samtals sex sinnum á starfsárinu. Starfsnefnd stjórnar fundaði samtals 6 sinnum á milli stjórnarfunda. Starfsnefnd stjórnar skipa þau Finnbjörn Hermannsson, Guðrún Birna Jörgensen, Georg Páll Skúlason,  Eyjólfur Bjarnason auk framkvæmdastjóra og fjármálastjóra.

Markaðs- og kynningarmál

Starfsárið var það fyrsta þar sem ekki var prentaður námsvísir með yfirliti yfir námskeið IÐUNNAR og þjónustu og honum dreift til félagsmanna. Áhersla var heldur lögð á auglýsingar og kynningarefni á vef og í samfélagsmiðlum. Áfram voru stök námskeið auglýst í prentmiðlum, t.a.m. í landsbyggðarblöðum. Prent- og miðlunarsvið gaf auk þess út sérstakt kynningarefni fyrir sín námskeið.

IÐAN í tölum

Á síðasta starfsári voru haldin alls 349 námskeið sem er metfjöldi námskeiða frá stofnun IÐUNNAR fræðsluseturs.


Forsíða | Stjórn IÐUNNAR